ALVÖRU VINÁTTA !!HHK

Dag einn þegar ég var á fyrsta ári í menntaskóla sá ég einn strák úr mínum bekk á leiðinni heim úr skólanum. Hann heitir Siggi. Það leit út fyrir að hann væri með allar sínar skólabækur í fanginu, og ég hugsaði með mér, hver í ósköpunum fer með allar sínar skólabækur heim á föstudegi. Hann hlýtur að vera „nörd". Ég var sko búinn að plana mína helgi sem framundan var með partýum og fótbolta með vinum mínum. Ég hlakkaði mikið til þannig að ég yppti bara öxlum og gekk áfram. Á meðan ég var að labba þarna sá ég fullt af krökkum hlaupa í áttina að Sigga. Þau slógu bækurnar úr fangi hans hrintu honum, þannig að hann datt í götuna og gleraugun flugu af honum og lentu í grasinu þó nokkuð frá honum. Hann leit upp og ég sá sorgina í augum hans. Ég vorkenndi honum, þannig að ég hljóp í áttina til hans þar sem hann var að leita að gleraugunum sínum. Ég sá tár í augum hans. Ég rétti honum gleraugun og sagði, þessir krakkar eru hálfgerðir asnar og ættu alls ekki að haga sér svona. Hann horfði á mig og þakkaði mér fyrir og brosti. Bros hans var eitt af þessum brosum sem bera vott um þakklæti, og í augum hans var mikið þakklæti. Ég hjálpaði honum að týna saman bækurnar og ég spurði hann hvar hann ætti heima. Þá kom í ljós að hann átti heima nálægt mér, svo ég spurði hann af hverju ég hefði aldrei séð hann fyrr. Þá sagði hann mér að hann hefði áður verið í einkaskóla.Við spjölluðum alla leiðina heim og ég hjálpaði honum að halda á bókunum. Mér fannst hann vera ansi hress strákur og spurði hann hvort hann væri til í að koma með mér og vinum mínum í fótbolta á laugardaginn. Hann var sko til í það. En ekki aðeins það heldur var hann með okkur alla helgina. Því betur sem ég og vinir mínir kynntumst honum, þess betur kunnum við við hann. Á mánudagsmorgninum hitti ég Sigga með allar bækurnar frá föstudeginum og ég gat ekki annað en gert smá grín að honum og sagði: „Þú færð örugglega svaka vöðva á að bera allar þessar bækur á hverjum degi." Hann hló og rétti mér helminginn af bókunum og við fórum í skólann. Næstu fjögur árin urðum við Siggi bestu vinir. Þegar við vorum á lokaárinu í menntaskólanum fórum við að huga að framhaldsnámi. Þá kom í ljós að hugur okkar stefndi í sitthvora áttina, og við ætluðum í sitthvorn framhaldsskólann. Hann ætlaði að verða læknir en ég viðskiptafræðingur. Ég vissi að við myndum alltaf verða vinir. Fjarlægðin á milli skólanna myndi ekki skemma vináttu okkar. Í menntaskóla var Siggi afburðanemandi - dúx. Ég stríddi honum stundum að hann væri „nörd" en hann bara hló að því. En af því að hann var dúx þá átti hann að flytja ræðu við skólaslitin. Ég var feginn að það kom ekki í minn hlut.Á útskriftardaginn leit Siggi rosalega vel út. Hann fílaði menntaskólann alveg í botn. Hann var töff strákur og gleraugun fóru honum vel. Hann hafði meiri séns en ég og allar stelpurnar voru yfir sig hrifnar af honum. Stundum öfundaði ég hann og á útskriftardaginn leið mér einmitt þannig. En ég tók eftir því að hann var hálfkvíðinn að flytja þessa ræðu, svo ég klappaði honum á öxlina og sagði, þú verður frábær, ekki hafa áhyggjur. Hann horfði á mig, þakklátur og brosti. Svo byrjaði hann á ræðunni: Á útskriftardaginn er tækifæri til að þakka þeim sem hjálpuðu manni í gegnum þessi fjögur erfiðu skólaár. Til dæmis foreldrum mínum, systkinum, kennurum og ef til vill þjálfara sínum í íþróttum en fyrst og fremst vinum sínum. Ég er hér til að segja ykkur öllum, að það að vera vinur einhvers, er besta gjöf sem þú getur gefið nokkurri manneskju. Ég ætla að segja ykkur smá sögu. Ég horfði undrandi á vin minn standa þarna í púltinu á meðan hann sagði frá þeim degi er við hittumst fyrst. Þá var hann orðinn svo dapur og þreyttur á að eiga enga vini, og á því að smella ekki inn í vinahóp í skólanum, að hann hafði ákveðið að fyrirfara sér þessa helgi. Hann talaði um að hann hefði tekið allar bækurnar og tæmt alveg skápinn sinn til þess að mamma hans þyrfti ekki að gera það þegar hann væri dáinn. Hann horfði beint í augun á mér, brosti og sagði: „Mér var bjargað þarna, þennan dag. Vinur minn bjargaði mér frá því að fyrirfara mér." Það fór kliður um salinn, þegar þessi myndarlegi og vinsæli ungi maður sagði okkur frá þessu viðkvæma atviki. Foreldrar hans brostu til mín, þakklætisbrosi. Það var einmitt á þeirri stundu sem ég gerði mér grein fyrir því hvað vinátta raunverulega er. Aldrei vanmeta þann kraft sem býr í gjörðum þínum. Eitt lítið atriði (þ.e. t.d. hvernig þú bregst við í vissum aðstæðum) getur breytt lífi annarar manneskju, til góðs eða ills. Ekki vera sá sem hrindir öðrum, hrindir annarri manneskju niður í skítinn. Vertu sá sem reisir hana upp, hjálpar henni að bera erfiðleikana. Guð hefur skapað okkur fyrir hvort annað, til að hafa áhrif á hvort annað á einhvern hátt.

Höfundur ókunnur.

Nokkuð gott !!HHK

Við konan mín lágum uppi í rúmi og horfðum á Viltu vinna milljón.
Ég snéri mér að henni og sagði, " Viltu gera do do ? "
Hún svaraði, " Nei"
Ég spurði, " Er þetta þitt lokasvar" ?
Hún leit ekki einu sinni á mig er hún svaraði " Já"
Ég sagði, "Þá langar mig að hringja í vinkonu"

og þá fór allt í bál og brand....

............................................................................
Ég spurði konuna mina, " Hvert langar þig að fara á brúðkaupsafmælinu okkar" ?
Mér hlýnaði um hjartarætur að sjá hvernig hún lifnaði öll við og horfði á mig
með aðdáun er hún svaraði,
"Einhvert sem ég hefi ekki farið lengi "
Með það í huga kom ég með uppástungu,
" Hvað með eldhúsið " ?

Og þá fór allt í bál og brand....
............................................................................
Síaðsta laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega, útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr. Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn, klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í kroppinn hvíslaði ég að henni, " Það er brjálað veður úti". Elskuleg konan mín til 10 ára svaraði strax," Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri"

Og þá fór allt í bál og brand.....
...........................................................................
Ég bauð konunni minni með í helgarferð til Boston um daginn og þar fórum við á fínt veitingarhús. Einhverra hluta vegan tók þjónninn fyrst pöntunina mín. Ég sagði, og var heldur rogginn með enskuna mina,
"I'll have the strip steak, medium rare, please."
He said, "Aren't you worried about the mad cow?""
Ég svaraði " Nah, she can order for herself."

Og þá fór allt í bál og brand....
...........................................................................
Við konan mín forum á árgangsmót í gamla skólanum míum. Þar sem við sátum tók konan mín eftir að ég horfði á konu á næsta borði. Kona þessi var vel drukkin og þambaði ótæpilega og röflaði við sjálfa sig milli glasa.
"Þekkir þú þessa konu" spurði konan mín.
"Já sagði ég, þetta er gömul kærasta og ég heyrði að hún hefði farið að drekka svona eftir að ég sagði henni upp þarna um árið".
Konan mín leit á hana í forundran og sagði," hver hefði trúað því að hægt væri að hafa svona ómerkilegan atburð að fagnaðarefni í öll þessi ár".

Og þá fór allt í bál og brand....
......................................................................................................
Um daginn varð ég 67 ára og hætti þá að vinna. Ég fór til að ganga frá öllu í sambandi við ellilífeyrinn minn. Konan á skrifstofuni bað um að sjá ökuskírteinið mitt til að staðfesta aldurinn og þá uppgötvaði ég að veskið mitt hafði orðið eftir heima. Konan sagði að þetta væri í lagi, bað mig að hneppa frá þremur efstu tölunum á skyrtunni minni. Ég gerði það og er hún sá silfurgráa englahárið á bringunni á mér sagði hún að þetta væri nóg staðfesting fyrir hana.
Þegar heim kom sagði ég konunni minni frá þessu. Hún varð hálf örg. " Bölvaður endemis asni ertu maður, þú hefðir átt að láta buxurnar falla líka . Ég er viss um að þá hefðir þú fengið örorkubætur út á þennan ræfil þarna niðri".

Og þá fór allt í bál og brand....

Koma svo, þið getið þetta !!!HHK

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Mundir þú bakka mig upp í slagsmálum?
12. Mundir þú þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Mundir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrítið um þig:
16. Mundir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talarðu eða hefurðu talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Mundir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju mundir þú vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefurðu?
25. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Mundir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað mundum við gera?
28. Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Gáta !HHK

Ætla að henda hér inn gátu :)


Hvað er það sem fátækir eiga,
ríkir þurfa,
er betra en Guð,
er verra en skrattinn,
og ef þú borðar það, þá deyrðu ???????

Verið nú dugleg að reyna að koma með svarið :);)

Einn góður ! :o)HHK

Maður utan af landi fer í pylsuvagn í Reykjavík og segir við afgreiðslumanninn.
Ég ætla að fá eina "pylsu" með öllu.
Þá segir afgreiðslumaðurinn, hér segjum við "pulsu"!!!.
Svo halda þeir áfram að þræta, þangað til maðurinn utan af landi segir,
ég vona að konan þín heitir ekki Bryndís.   :):):)

Smá til að létta lífið í þessari kreppu.HHK

Ljóska nokkur kom inn í vefnaðarvöruverslun
þar sem seld eru gluggatjöld.
Hún sagði við afgreiðslukonuna:
"Ég ætla að fá bleik gluggatjöld sem myndu
passa á fyrir skjáinn á tölvunni minni"
Afgreiðslukonan varð nokkuð hissa og svaraði:
"En þú þarft ekki gluggatjöld á tölvuna."!!!....

Þá svaraði ljóskan:
"Halló.................. Ég er með windows"!!!



> Næst þegar þú ætlar að nota einnota Latex hanska þá er ekki annað hægt en að brosa þegar þú heyrir það sem hér fer á eftir:
>
> Tannlæknirinn tók eftir að litla gamla konan sem var næst í stólinn hjá honum var ansi kvíðin svo hann ákvað að segja henni smá brandara til að róa hana.
>
> Hann setti á sig hanskana og spurði um leið hvort hún vissi hvernig svona hanskar væru búnir til.
>
> Nei sagði hún.
> Jæja hélt hann áfram,
> það er verksmiðja í Kanada sem er með stóran fullan tank af Latex efni og verkamennirnir þar dýfa höndunum í tankinn með efninu, láta svo efnið þorna og fletta síðan af sér hönskunum og láta þá í kassa merkta viðkomandi stærð.
>
>
> Gömlu konunni stökk ekki bros.
> Jæja það mátti reyna, hugsaði tannlæknirinn.
> Fimm mínútum seinna á meðan viðkvæmur hluti tannaðgerðarinnar stóð yfir, fór gamla konan að skellihlæja.
> Hvað er svona skemmtilegt sagði tannlæknirinn.
>
> Ó! Ég fór allt í einu að velta fyrir mér hvernig smokkar væru búnir til.


Smá stikl !!HHK

Jæja, ég held að það sé kominn tími á eilítið blogg frá mér Surprised  Smá tími síðan eitthvað hefur komið hér inn að viti Tongue out

Lífið hjá mér gengur sinn vanagang Smile

Jólin voru fín, börnin áttu yndisleg jól hjá pabba sínum, ég átti nú ekki von á öðru Smile
Held að þau hafi verið aðeins erfiðari hjá mér, þar sem ég saknaði þeirra óendanlega mikið Undecided 
Svolítið tómlegt án þeirra og án Andrésar líka Cry                Inga Margrét bætti aðfangadagskvöld upp með veru sinni á Kleppsveginum, þá fékk maður að
sjá þennan pakkaspenning sem alltaf er svo gaman að fylgjast með Laughing
Yndislegt að komast heim aftur, og geta knúsað kallinn og grjónin mín Kiss

Átti frábært gamlárskvöld, grjónin og kallinn voru hjá mér og var mikið húllumhæ, Kristín kom síðan eftir vinnu og Eydís eftir miðnætti, það var aðeins fengið sér í staup (bara pínu ) Wink  Síðan kíktum við á pöbbana, þetta var bara frábært kvöld Laughing Ég vil þakka öllum fyrir liðið ár, með von um að þetta verði jafn frábært Smile

Núna er tekin við þessi hefðbundna rútína (vinna, eta, sofa) sem er ágætt útaf fyrir sig, alltaf gott að hafa reglur á öllum hlutum Cool

Síðustu helgi bættist við nýr fjölskyldumeðlimur, hann heitir Stjáni blái og er ofsalega sætur kettlingur Kiss Byrtist með hann heima án þess að krakkarnir mínir höfðu hugmynd um að von væri á honum Smile Að sjálfsögðu var óendanleg gleði hjá þeim Laughing  Svo ég tali nú ekki um Andrés minn, versta við þetta er að kisi vill helst hvergi annars staðar vera eða sofa nema hjá Andrési, sem veldur því að ég er pínu abbó hehe Wink Tongue out 

Miklar og stórar pælingar eru varðandi miklar breytingar, sem ég er spennt og sátt við, kem með meira um það seinna Wink Ekki alveg tímabært að skella því hér inn Sealed

Held að þetta sé að verða ágætt hjá mér, læt þetta gott heita og segi:

Verið góð hvert við annað, þá gengur allt miklu betur KissSmileWink

Júhúúú!!HHK

Ný könnun ;)

Smúddsss til ykkarr;)


Blogga later busy núna ;)

Gleðilegt nýtt ár takk fyrir það gamla elskurnar :)

knúss og kossarrr :):):)

Smá fréttir !HHK

Held að það sé kominn tími á smá fréttir frá okkur :)

Hér gengur allt sinn vanagang, vinna, skóli, borða og sofa:)

Grjónin að sjálfsögðu farin að telja niður í jólafríið, körfuboltaæfingar, fótboltaæfingar, skíði, snjóbretti, og litla grjónið í leikskólanum, sem er alltaf jafn gaman hjá henni :) Og hún farin að telja niður í það að stekkjastaur komi til byggða, er voða stillt og prúð, svo hún fái eitthvað fallegt og fínt í skóinn :)

Styttist í það að ég fari suður, ætla að vera í foreldrahúsum yfir jólin, þar sem grjónin mín verða hjá pabba sínum :/ Það verður voðalega skrítið að vera án þeirra yfir jólin, en pabbi þeirra hefur að sjálfsögðu rétt á því að hafa þaug yfir jólin rétt eins og ég :) Það verður bara yndislegt að koma heim og knúsa þaug :)

Ekki hefur verið mikið um djamm hjá minni, sem er bara ágætt, nema jú það var svona jólafrænkuhittingur á síðasta laugardagskvöld, hittumst heima hjá systur pabba á Akureyri, þetta var bara frábært kvöld, allar komum við með eitthvað gott á borðið :) FRÁBÆRT KVÖLD :):):);) 

Jæja best að fara að hætta þessu í bili, sitja hér Andrés og Eggert og bíða eftir að ég hætti að nördast ;)

Knússs, kosssarrr og kremjurr til ykkar allra:)

VERIÐ GÓÐ HVERT VIÐ ANNAÐ ELSKURNAR MÍNAR :):):):) ÖLL DÝRIN Í SKÓGINUM EIGA AÐ VERA VINIR, NEMA SVÍNIN :)  

Ný könnun :)HHK

Ný könnun Smile

Smúddsssss til ykkar allra Wink

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: HHK
  • Staður: Dallas city
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Ritari
  • Hjúskaparstaða: Þokkaleg :)

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it… Funny Images, BukCookie Funny Images, Fun With Perspective

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Legst árið 2009 vel í þig ??

Leikur dagsins